Náttúruskvísur

Hreyfing, núvitund og vellíðan í náttúrunni

Náttúruskvísur flétta saman hreyfingu, núvitund og vellíðan úti í náttúrunni. Konur fá tækifæri til að hlusta á líkamann, finna innri ró, efla styrk og dýpka tengsl við líkama og huga.

Prófaðu eina göngu

Engin áskrift nauðsynleg

Þú getur komið í eina göngu og prófað — keyptu stakt pláss án þess að skuldbinda þig.

Prófa næstu göngu

Upplifun í fyrirrúmi

Gönguferðir utanvega - ýmist upp á fell eða á flatlendi en alltaf í fallegri náttúru.

Styrkæfingar, liðkandi æfingar, núvitundaræfingar. Við æfum okkar í að hægja á og njóta ferðarinnar. Ef þetta hljómar eins og eitthvað fyrir þig vertu þá hjartanlega velkomin!

Fréttir

Ertu klár í haust- og vetrargöngurnar?

Nú þegar farið er að dimma og kólna er gott að huga að búnaðinum fyrir göngurnar. Hér deili ég einföldum ráðum um hlýjan klæðnað, höfuðljós og hálkubrodda – og hvernig þú getur nýtt það sem þú átt og bætt við smám saman.

29. okt. 2026, 12:42

Næsta gönguferð

Elliðarárdalur

  • Reykjavík
  • 16. nóv. 2026, 17:30
  • 2 klst
Laus pláss

Umsagnir gesta

Það sem viðskiptavinir okkar segja

GuðrúnUmsögn viðskiptavinar
“Ótrúlega skemmtilegt námskeið og Anna Margrét alveg frábær. Henni virðist vera virkilega umhugað um að við beitum okkur rétt við hlaupin og gönguna sem er gott fyrir nýliða í þessum bransa eins og mig. Gaman að fara nýja leið í hverri viku. Dásamlegt að taka núvitundaræfingar í náttúrunni. Mæli svo sannarlega með náttúruskvísum!”

Framundan

Gönguferðir í leiðsögn

Skoða allar gönguferðir

Spurt og svarað

Algengar spurningar

Í hversu góðu formi þarf ég að vera til að koma í göngur?

Fyrir göngurnar miða ég við að þú getir gengið upp brekkur og fell (200-300m hækkun) verkjalaus. Það er að segja að þú sért ekki með verki í stoðkerfinu t.a.m. í baki eða hnjám. Að þú getir lagst niður á jörðina og staðið upp aftur án erfiðleika.

Get ég sótt um niðurgreiðslu á námskeiðum hjá þér hjá stéttarfélögum?

Margir vinnuveitendur og stéttarfélög veita líkamsræktarstyrki og sum hver einnig niðurgreiðslu á heilsunuddum. Þið fáið kvittun fyrir göngum, fjarþjálfun og heilsunuddi hjá mér.

Verð ég alveg úti á túni ef ég mæti ein en ekki með vinkonu með mér?

Alls ekki! Margar konur koma einar í göngurnar. Við tökum vel á móti þér - stemningin er afslöppuð og þú verður fljót að kynnast hinum skvísunum.

Hvernig virkar áskriftarleiðin?

Þegar þú skráir þig í áskrift í fyrsta sinn seturu inn kortaupplýsingar sem unnið er með í gegnum örugga síðu hjá Straum. Mánaðarlega er svo dregið af kortinu þínu eða þar til þú segir áskriftinni upp (sjá nánar í skilmálum). Áskriftin veitir þér aðgang að öllum göngum sem í boði eru á tímabilinu og einnig aðgang að fjaræfingum sem í boði eru undir flipanum "Námskeið" (kemur inn síðar). Ef þú segir upp áskriftinni þá lokast um leið aðgangur að fjaræfingunum.

Má ég taka hundinn minn með í göngurnar?

Ekki er leyfilegt að taka hunda með í göngurnar. 💛 Við viljum að þetta sé stund fyrir þig, þar sem þú getur einbeitt þér að sjálfri þér og notið þess að þurfa ekki að hugsa um neinn annan. En það er tilvalið að kynnast nýrri leið með okkur og fara hana svo aftur með hundinum þínum. Þannig fær hann líka að njóta og þú festir leiðina betur í minni!