Náttúruskvísur komnar með heimasíðu! 💚
Mig langaði að búa til einn stað þar sem þú getur fundið allt um Náttúruskvísur, skoðað ferðir og æfingar, séð hvað er á döfinni og bókað þér pláss í göngu á einfaldan hátt.
Með afar góðri hjálp er þessi síða loksins orðin að veruleika! Jibbí! Mig langaði að búa til einn stað þar sem þú getur fundið allt um Náttúruskvísur, skoðað ferðir og æfingar, séð hvað er á döfinni og bókað þér pláss í göngu á einfaldan hátt. Hér mun ég líka deila fréttum, litlum innslögum, fróðleiksmolum og öðru skemmtilegu um hreyfingu, náttúruna og vellíðan almennt. Vonandi finnurðu hér bæði innblástur og eitthvað gagnlegt sem þú getur tekið með þér út í daginn. Og svo er eitt skemmtilegt í viðbót - ef þú ert í áskrift geturðu boðið vinkonu með þér frítt í göngu! Ég hlakka til að þróa þetta áfram og deila með þér öllu því skemmtilega sem er framundan. Ég hvet þig til að flakka aðeins um á síðunni, skoða hvað er í boði og bóka þér sæti í næstu göngu! Hlakka til að sjá þig! Bestu kveðjur, Anna Margrét
